Um fyrirtækið
Búr ehf er stofnað árið 1995. Að félaginu stóðu kaupfélögin ásamt Nóatúni og Olíufélaginu hf. Tilgangur félagsins var að annast innkaup og birgðahald á þurrvöru fyrir dagvöruverslunina. Í ársbyrjun 2007 eignaðist Samkaup hf hlut Kaupáss hf í Búri og er nú með eignarhald á um 93% hlutafjár.

Árið 2002 hóf Búr innkaup og dreifingu á ávöxtum og grænmeti og flutti um leið starfsemi sína í eigið húsnæði að Bæjarflöt 2 í Grafarvogi. Heildarmagn sem fyrirtækið selur á ári er um 18.000 tonn til yfir 200 viðskiptavina í dagvöruverslun og á stofnana-og veitingahúsamarkaði. Markaðshlutdeild Búrs á innlendum ávaxta-og grænmetis markaði er tæp 30%.

Búr vinnur í nánu samstarfi við íslenska og erlenda bændur um framleiðslu á grænmeti og ávöxtum bæði ylræktuðu og útiræktuðu. Lögð er áhersla á að stytta flutningaleiðir eins og hægt er. Þannig sparast orka og kostnaður og næst að viðhalda ferskleika í vörunni alla leið til neytenda.

Búr býður upp á yfir 400 vöruliði að staðaldri í ferskum ávöxtum og grænmeti. Íslensk framleiðsla nemur um þriðjungi af sölu fyrirtækisins.

Megin markmið Búrs ehf er að sjá viðskiptavinum sínum fyrir fjölbreyttu og fersku vöruvali á samkeppnishæfu verði. 

Framkvæmdastjóri er Sigurður Á. Sigurðsson.

Búr ehf - Bæjarflöt 2 - 112 Reykjavík - Sími: 510-9400 - Fax: 5109440